~Hollywood~
Söngtextar og tab
Aðrir bekkir
22.10.2007 20:22:45 / Dagrún

Hamingju óskir

Langaði að óska Siggeiri og Soffíu innilega til hamingju með litlu prinsessuna :) Sá myndir af henni inn á heimasíðunni hans Siggeirs og er stúlkan gullfalleg. Alltaf fjölgar börnunum í hópnum... Hver ætlar að vera næstur? Verðum að halda áfram að vera einn frjósamasti bekkurinn ;) hehe

Vonandi gengur samt sem best hjá ykkur öllum. Rekst alltof sjaldan á gamla bekkjarfélaga, ef Helgi er ekki talinn með.

Eflaust margt að gerast hjá hópnum, en Siggi var t.d. að klára flugmanninn um daginn og langaði mig líka að óska honum til hamingju.

Annars bara hafið það sem best...

Kveðja Dagrún


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 17:37:30 / Helgi

Til hamingju með daginn!!

 

Hæ hó jibbí jei og jibbí jei..

Það er kominn sautjándi júní!!

 

Langaði bara að óska ykkur gleðilegrar hátíðar

og

TIL HAMINGJU með 2 ára stúdentsafmæli!!

Kveðja Helgi


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 01:51:35 / soffia

Tímabundin ritskoðun

Ef einhver rak augun í færsluna sem fékk að standa hér í tæpa 4 tíma þá ætla ég vinsamlegast um að biðja þann hinn sama að halda þessum fréttum fyrir sig tímabundið :) Opinber tilkynning frá okkur verður birt innan skamms en þangað til bið ég fólk sem hefur þegar haft veður af þessu um að sitja á sér.

 Kveðjur,

Siggeir, fyrrum U-ari. 


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 10:59:52 / Svala

Jæja, hugsanlega eina nýja færslu hérna á þessu ári :)

Sæl verið þið kæri gamli bekkur, núna sit ég í tíma í fjármálum fyrirtækja í H.R., þið hafið nú líklega ekki mikinn áhuga á því en þetta er í alvöru spennandi.. :) Það er ekki bara raunvísindadeild HÍ sem tekur við eftir náttúrufræðibraut í MA :) Spyrjið bara Atla...

 Jæja, það sem er að frétta af mér er að ég er að flytja uppí Grafarholt, þar er BN (byggingarfélag námsmanna) með íbúðir fyrir námsmenn. Glæ splúnku nýjar íbúðir :) Sem er nokkuð næs.

Síðan eru að taka við kynningar á háskólunum sem maður verður að taka þátt í , Stóri Háskóladagurinn í Borgarleikhúsinu næsta laugardag (17.febrúar). Ætla ekki allir að mæta ? ;)

Síðan langar mig að minna ykkur á að í febrúar fá ungmenni (-25 ára) leikhúsmiðann á 1.000 kr í Borgarleikhúsinu og mæli ég með því að þið farið á Ó fagra veröld, það er mjög gott leikrit. Reyndar frekar langt en það er samt rosalega gott.

Síðan er ég að fara með skólanum mínum til Spánar í málaskóla, við förum frá H.R. nokkrir krakkar sem erum að læra spænsku, verðum í mánuð og fáum 6 einingar fyrir, frekar næs.. :) hlakka rosalega mikið til.

Mig langar að kanna hvar fólk verður í sumar ? Eruði á Akureyri eða ætlið þið bara að vera heima hjá ykkur á stúdentagörðunum eða í litlu sætu íbúðunum ykkar í Borg óttans ?


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 00:05:30 / Dagrún

Smá jólakveðjur.

Langaði bara að óska ykkur með að verða búin með prófin og svo óska ykkur allra gleðilegra jóla, en þetta árið sendi ég engin jólakort. Ekki vera móðguð þið sem fáið venjulega kort frá mér. Mér þykir ekkert minna vænt um ykkur :)

Vonandi hafið þið það sem best.

Kv. Dagrún


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 18:54:47 / Dagrún

Langt um liðið....

Langaði svona að kasta kveðju á bekkinn og athuga hvernig fólkið hefur það... hjá mér er alveg brjálað að gera. Veit að það er þannig hjá fleirum, en vonandi gengur öllum bara vel.

Ég og Helgi erum að basla í gegnum tvo líffærafræðaáfanga og einn eðlisfræði, sem ótrúlegt en satt er bara nokkuð skemmtilegur (aðeins skemmtilegra viðfangasefni heldur en í eðlisfræði í MA). Vorum uppi á landsspítala áðan að skoða geislameðferðartækin og læra svona aðeins um þau og prógrammið sem fólkið fer í áður en meðferð getur hafist, voðalega spennandi allt saman. Ég og Helgi erum meira að segja í studygroup ásamt einni annarri stelpu og gengur samstarfið bara svona fínt.

Annars bara gangi ykkur vel í vetur og áfram. Vonandi hittir maður á einhvern af ykkur bráðlega.

Kv. Dagrún 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 21:24:54 / siggist

Kominn tími til...

Djöfull sökkar þessi síða!!! 8) Neinei...hún er fín sko...

En já, bara svona til að setja eitthvað hérna inn þá vil ég koma með spurningu: Hvert er fólkið að fara og hvað á að gera?!

Svona þar sem það er komið enn eitt haustið síðan við útskrifuðumst :S þá finnst mér vel við hæfi að forvitnast aftur. :) Sumir kannski að skipta um nám og aðrir bara að byrja.

Ég fyrst...Oxford í september í Oxford Aviation Training. Nú þú!!

;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 23:12:05 / Helga Kristín

Til Hamingju!!!!

Hæhæ og takk fyrir seinast bekkur, kvöldið var vægast sagt frábært!!

En mér finnst alveg tilefni til að óska bekkjarsystkinum okkar til hamingju með að vera komin inn í LÆKNINN

Æðislegt...innilega til hamingju Dagrún og Helgi

kv. Helga K


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 21:13:37 / siggist

Stanslaust stuð að eilífu...

Sælt veri fólkið...

Ég vil þakka öllum í U'inu fyrir frábært föstudagskvöld í seinustu viku. :D
Það var ótrúlega gaman að hitta alla aftur og finna fyrir því aftur í eitt kvöld hvernig stemning var að vera í MA.Ótrúlega gaman og ég er strax farinn að telja niður fyrir 5 ára reunion'ið :p

Ég var líka að skoða myndbandið sem ég tók í partýinu hjá Hildi og það lítur vel út. Verður gaman að skoða þessa stuttu klippur tvær eftir nokkur ár. :p Svona eins og horfa á Beverly Hills 90210 núna...hehe

Kveðja,
Siggi Stein


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 10:01:42 / Eygló

Til hamingju með afmælið

Vildi bara óska Hildi til hamingju með daginn, orðin 21. árs. Hlakka til hitta ykkur heima hjá Hildi í dag. Allir að muna svo eftir húfunum.!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 10:40:33 / Elfa

fimtándinn

þar sem það er búið að hætta við kjarna þá þurfum við að skemmta okkur sjálf, það sem mig langar að gera er bara að stela hugmyndinni frá gbekknum og fara í sund og svo heim til einhvers (guðrúnar líkalega þar sem hún var svo góð að bjóða fram heimilisitt til skemmtannahalds) á fyllerý.. ekkert flókið bara drekka og syngja kannski smá, svo held ég að bekkirnir muni sameinast eitthvað seinna um kvöldið niðrí bæ og með mat já ég er svööng og held að það sé bara best að panta pizzu... allir bara að koma með þússara og svo sameinast bara fólk um álegg og gúmmelaði
sjálfri finnst mér þetta fínt plan afþvi að það er litið plan...

svo í öðrum fréttum þá húrra fyrir mér elfu, birni ívari og svölu afþví að við erum kominn inní hr og verðum ógeðslega gáfuð og rík!! húrra jejj

takktakksmakk

» 17 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 20:51:55 / Dagrún

Hildur aftur

Hæ Hildur aftur...var að fá fleiri upplýsingar...

Hittingur!!!!
Nú er komið að því... Nú hittumst við aftur og er orðið tímabært að skrá sig og að sjálfsögðiu þá mæta allir. grill og þjóðhátíðarstemmning. verð 2000- 2500 kr eftir því hversu margir mæta. þeir sem geta spilað á gítar enda lega mætið með hann, svo við getum öll sungið saman.
 Vinsamlega tilkynnið mætingu í smsi þar sem fram kemur nafn og sendið  Ólöfu Sms í síma 8679583

En er að pæla...hverngi bætir maður eiginlega við notendum...er ekki svo heimsk að ég sjái ekki linkinn Bæta við notendum...en svo kemst ég ekki lengra....:^) 8| og var að sjá að ég er frosin þar ekki einu sinni heldur TVISVAR!!!!! andsk....flott gott hjá mér...

Hildur


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 20:35:58 / Dagrún

Hildur

Hæ krakkar!!! Þetta er Hildur, varð að koma skilaboðunum til ykkar (þar sem búið er að loka á minn aðgang að þessari síðu...)

En já með 15. júní þá ætla bekkirnir að hittast í grillveislu út í Kjarna og skemmta sér eitthvað fram eftir kvöldi. Verð kemur síðar reikna samt með svona 2-3000 kr.... ef einhver er með hugmyndir um hvað ykkur langar að gera þar, endilega látið mig vita...

Svo annað er ekki stemmari fyrir því að hittast 16. júní áður en við förum í Höllina? Og fara svo ölll saman? 8)

Annars er allt gott að frétta...er á leið í verkfræði í haust... en endilega látið mig vita hvort það sé áhugi fyrir þessu öllu eða ekki....

Hildur


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 17:30:55 / Svala

15.júni 2006

Jæja, mig langar aðallega að vita hverjir ætla að djamma með okkur 15.júní ? Hvort það borgi sig að plana eitthvað skemmtilegt til að gera sem bekkur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5